Við völdum dýpt

Við vinnum með letterpress - hefðbundna prentaðferð, endurtúlkaða fyrir nútímann.

Blekið er þrykkt ofan í mjúkan pappír og skilur eftir sig áferð sem má bæði sjá og finna. Ljós og skuggi verða hluti af hönnuninni sjálfri og hvert verk fær dýpt og nærveru sem stafræn prentun nær ekki að endurskapa.

Það sem áður var sett saman staf fyrir staf er í dag unnið stafrænt. Lokaniðurstaðan er færð yfir á polymer-prentplötur og prentuð hægt, einn lit í einu, með Pantone litum og gömlum prentvélum.

Letterpress er hægara ferli þar sem handverk og nákvæmni ráða ferðinni. Hvert verkefni er unnið í höndunum og prentað sérstaklega fyrir hvern viðskiptavin.

Við framleiðum pappírsvörur fyrir vörumerki, fyrirtæki og persónuleg tilefni - frá nafnspjöldum og ritföngum til matseðla, boðskorta og sérhannaðra prentgripa.

Það sem gott er að vita

FAQ

Bjóðið þið upp á hönnun eða þarf ég að koma með hana sjálf/ur?

Við bjóðum bæði. Þú getur komið með þína hönnun eða látið okkur skapa eitthvað sem er gert fyrir prent.

Við vinnum gjarnan með grafískum hönnuðum, auglýsingastofum og skapandi fólki hvaðanæva að. Áður en framleiðsla hefst biðjum við um PDF af hönnuninni til að tryggja að verkið henti letterpress-prentun.

Letterpress hentar best fyrir hönnun sem: byggir aðallega á leturfræði, notar skýrar línur og vigurteikningar, inniheldur ekki stór samfelld litaflöt, inniheldur ekki litatóna eða gradients (halftone gradients geta þó virkað), er unnin sem vigurskrá.

Kröfur fyrir prentskrár: lokaskrár skulu afhentar sem Adobe Illustrator skrá (.ai) og prentklárt PDF, allt letur þarf að vera outline-að, hlutir sem prentast í sama lit skulu vera hópaðir saman, lokastærð þarf að koma skýrt fram í skráarnafni, bleklitir má skila sem Pantone (PMS) eða HEX
gildum, framleiðslutími hefst þegar allar skrár og gögn hafa verið samþykkt.

Við getum ekki borið ábyrgð á skemmdum skrám, týndum leturgerðum eða skrám sem eru ekki rétt undirbúnar fyrir prentun.

Verð fyrir verkefni sem fela eingöngu í sér prentun miðast við að hönnunarskrár séu faglega undirbúnar og tilbúnar til framleiðslu. Það þýðir að skrárnar séu rétt uppsettar fyrir letterpress-prentun og krefjist lágmarks yfirferðar, hönnunarvinnu eða undirbúnings fyrir prent. Verkefni sem þurfa frekari lagfæringar, umbrot eða undirbúning geta bæst við aukagjöld vegna hönnunar eða prentundirbúnings.

Get ég fengið prufu áður en prentað er?

Þegar við höfum móttekið pöntunina undirbúum við uppsetningu og sendum PDF-próför til yfirferðar. Á því stigi gefst þér tækifæri til að óska eftir breytingum, staðfesta upplýsingar og spyrja spurninga áður en framleiðsla hefst.

Þar sem letterpress-prentun krefst mikils undirbúnings á gömlu prentvélunum okkar bjóðum við ekki upp á prentaðar prófanir sem staðalþjónustu.

Letterpress er áþreifanlegt og handunnið ferli þar sem smávægileg frávik eru hluti af eðli prentunarinnar. Ef þú ert óörugg/ur á einhverju stigi hvetjum við þig til að hafa samband - við förum alltaf yfir ferlið með þér og svörum öllum spurningum áður en prentun hefst.

Hversu langan tíma tekur framleiðslan?

Þar sem öll verkefni hjá okkur eru sérunnin er afhendingartími mismunandi eftir umfangi verkefnisins og stöðu framleiðslu hverju sinni.

Framleiðsla hefst formlega þegar PDF-próför hefur verið samþykkt.

Vinsamlegast athugið að afhendingartími hefst ekki þegar skrár eru sendar í fyrsta sinn og inniheldur ekki sendingar- eða afhendingartíma.

Tíminn er hluti af ferlinu. Hver hlutur er settur upp, blekblandaður og prentaður í höndunum. Yfirleitt 5-14 daga. Þar sem hvert verkefni er handprentað á gamlar prentvélar geta tímalínur framleiðslu breyst lítillega eftir árstíma og álagi í verkstæðinu.

Stórir samfelldir litafletir

Samfelldir litafletir eru erfiðir í stjórnun og því geta komið fram litamunir í gegnum prentunina. Sum eintök geta verið með dekkri blekþéttleika og önnur ljósari. Við fylgjumst mjög vel með samræmi í prentuninni, en hafðu í huga að blek á prentvél er sett á og stýrt handvirkt.

Stundum getur verið nauðsynlegt að prenta með minni blekþéttleika á stórum litaflötum til að halda fínum smáatriðum í hönnuninni skörpum. Við köllum þessa áferð stundum „salty“. Það fer eftir litavali og pappír hversu mikil þessi áferð verður í lokaútkomunni.

Letterpress með djúpri pressu breytir þykkt pappírsins líkamlega. Þegar stór svæði eru prentuð með mikilli pressu getur pappírinn viljað bungast eða bogna. Við köllum þetta stundum „potato chip“ áhrifin. Því meira sem er prentað á örkina, því minni líkur eru á að lokaafurðin liggi alveg flöt.

Ef þú ákveður að halda áfram með núverandi hönnun munum við fara fram á skriflegt samþykki (í tölvupósti) þess efnis að þú hafir lesið og skilið ofangreindan fyrirvara og samþykkir lokaútkomuna með þeirri vitneskju að verkið hafi verið letterpress-prentað og framleitt af eins mikilli nákvæmni og mögulegt er.

Hver er lágmarkspöntun?

Við vinnum bæði með litlar seríur og stærri framleiðslu.
Ef eitthvað - spurðu okkur hversu langt við getum gengið.

Af hverju er letterpress dýrara en hefðbundin prentun?


Hönnunin er færð yfir á áþreifanlega prentplötu. Hver litur er prentaður sér. Hvert skref er unnið í höndunum. Útkoman er ekki einfaldlega prentuð - hún er handunnin.

Get ég komið við til að skoða sýnishorn eða ræða verkefni?

Við hittum fólk gjarnan. Þar sem við vinnum á gamlar prentvélar í litlu vinnustúdíói getum við þó ekki alltaf tekið á móti óvæntum heimsóknum meðan vélarnar eru í gangi. Við erum einnig tveggja manna verkstæði og erum oft í afhendingum, uppsetningum eða fundum. Til að gera ferlið þægilegt fyrir alla biðjum við vinsamlegast um að allar heimsóknir, ráðgjöf og afhendingar séu skipulagðar fyrirfram í gegnum tölvupóst.

Hvar er hægt að kaupa vörurnar ykkar?

Auk þess að hanna sérlínur fyrir verslanir og vörumerki framleiðum við einnig okkar eigin línu af pappírsvörum og letterpress-vörum. Vörurnar okkar fást meðal annars hjá Allt í köku, Epal, Hrím, Garðheimar, Húsgagnahöllin og Gamla Bókabúðin.