Við höfum sérhæft okkur í Letterpress prentun,
sem er aldagömul prentaðferð með nútíma tvisti

Útkoman er áþreifanleg og einstök þar sem grafík og letri er þrykkt ofan í mjúkan pappírinn svo úr verður skuggaleikur sem hefðbundin prentaðferð nær ekki að skila. Hér áður fyrr var unnið með lausaletur úr blýi eða tré og var letrinu raðað saman staf fyrir staf svo úr urðu orð og setningar. Í dag vinnum við nánast alla grafík í tölvu og njótum frelsisins sem felst í því að geta valið úr ótal leturtegundum og grafík. Útkoman er síðan færð yfir á polymer prentplötur, sterkt plastefni sem hægt er að þrykkja djúpt í þykkan pappír.

Við prentum 1 lit í einu og notum pantone sérlitakerfið.

Startkostnaður er alltaf sá sami og lækkar stykkjaverð þegar tekið er meira magn en það er sjálfsagt að prenta allt frá 1 stykki og upp í þúsundir. Aðferðin er ögn flóknari og tímafrekari en t.d. stafræna leiðin svo gera þarf ráð fyrir 7-10 dögum í prentferlið eftir að útlitsleiðin er ákveðin. Boðið er upp á hönnun fyrir hvaða tilefni sem er en einnig prentum við snilld annarra hönnuða með ánægju.

 

Hafðu samband á reykjavik@letterpress.is til að fá verð eða frekari upplýsingar.

ELEVATE YOUR BRAND

STAND OUT

Discover the tactile beauty of letterpress printing with a modern twist.

Create personalized stationery, business cards, marketing materials that leaves a lasting impression.

IN THE SPOTLIGHT

At our studio, we're all about turning your brand's essence into visuals.

Whether you need killer social media pictures or want to immortalize your events,

we're here to make it happen.